þriðjudagur, 26. ágúst 2008

Komin heim


Nú erum við komin aftur út til Svíþjóðar.
Christian byrjaði að vinna í gær en við Ísak höfum viku í viðbót í fríi.
Ísak var í morgun í heimsókn hjá dagmömmunni og það gékk vel. Fór beint inn í leikherbergið og lék við Lucas vin sinn en þegar við vorum búin að vera í tæplega klukkutíma náði hann í húfuna sína og vildi fara heim.
Sjáum til hvernig gengur á mánudaginn þegar hann verður í tæpa 9 tíma.
Komnar nýjar myndir í ágústalbúmið.
Vinnan í húsinu heldur áfram og mér heyrist þeir vera byrjaðir á þakinu. Eru líka á fullu að pússa veggi á neðri hæðinni.
Jæja best að drífa sig, við Ísak erum að fara með vinkonu minni úr vinnunni og dóttur hennar í Universeum.

2 ummæli:

Ólöf Viktorsdóttir sagði...

Elsku Magga min, mikið var nú gaman að hitta þig á Íslandi, þótt stutt væri! Næst er það Boston :)

Arna B. sagði...

Hæ hæ. Svaka gaman að sjá ykkur á Íslandi um daginn. Hann er svo sætur hann Ísak. Vona að hann verði sáttur hjá dagmömmunni í dag;)
xxx,
Arna og co